fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024
433Sport

Allt á suðupunkti hjá FH: Ágreiningurinn er peningalegs eðlis – Foreldrar segja sig frá störfum

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 9. desember 2019 10:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar FH hefur sagt starfi sínu lausu. Ástæðan er að þeirra sögn trúnaðarbrestur og óásættanleg vinnubrögð hjá stjórn knattspyrnudeildar og formanni félagsins. Viðar Halldórsson, formaður FH, staðfestir við 433.is að ágreiningurinn snúist að fjármunum sem færðir voru á milli reikninga.

Stjórnin sem sagði sig frá störfum er ósátt með það hvernig fjármunir hafa verið færðir á milli deilda, mikið hefur verið rætt um fjárhagsvandræði meistaraflokks karla FH síðustu vikur og mánuði. Stjórn knattspyrnudeildar FH hefur unnið hörðum höndum að því að leysa þann mikla vanda. Herma heimildir 433.is að launakostnaður við meistaraflokk karla félagsins hafi lækkað um rúm 20 prósent frá því að tímabilinu lauk í haust. Stjórnin og formaður knattspyrnudeildar reyna að snúa við blaðinu.

,,Ég veit ekki hver trúnaðarbresturinn er en ágreiningurinn er peningalegs eðlis,“ sagði Viðar Halldórsson, þegar við ræddum við hann í dag. Hann ítrekar það að ekkert hafi verið gert sem er bannað eða ólöglegt samkvæmt lögum félagsins.

,,Ástæðan er skoðanaágreiningur við formann og framkvæmdarstjórn knattspyrnudeildar og formann félagsins. Trúnaðarbrestur og óásættanleg vinnubrögð þeirra síðustu vikur,“ skrifar Arnar Hjálmarsson í tilkynningu sem var send á hóp foreldra ungra knattspyrnukrakka í FH, þar sem kemur fram að stjórn barna- og unglingaráðs segi sig frá störfum. Undir póstinn rita ásamt Arnari, Elías H Melsted, Linda Hlín Þórðardóttir og Sigrún Helga Jóhannsdóttir.

Þannig voru fjármunir færðir á milli, frá barna- og unglingaráði yfir í meistaraflokka félagsins, að öllum líkindum til að gera upp skuldir þar. ,,Það snýst alltaf um það, hvað er gert við peninginn. Það er ekki verið að taka neina peninga,“ sagði Viðar.

Viðar vill benda á það félagið hafi bætt aðstöðu allra í félaginu, það sé meira mál en svona hlutur. ,,Fyrir mér er meira mál hvernig félagið hefur staðið sig í aðstöðumálum, ég tel það vera meiri atriði. Þar hefur verið betur að verkum staðið en hjá nokkru öðru félagi, það er meira mál en að 5-6 milljónir séu færðar á milli,“ segir Viðar en FH var að klára að byggja knattspyrnuhús í fullri stærð en ljóst má vera að deilur innan félagsins eru talsverðar.

Um helgina hittust síðan aðilar málsins og reyndu að finna sátt. ,,Fyrr í vikunni sagði stjórn barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar FH sig frá öllum trúnaðarstörfum fyrir deildina. Formaður FH, varaformaður FH, hluti stjórnar knattspyrnudeildar FH og fráfarandi stjórn barna og unglingaráðs hefur fundað um málið og eru að vinna sameiginlega að sátt um ágreining aðila. Allir eru staðráðnir í því að tryggja að starfið fyrir iðkendur, foreldra og þjálfara haldist óbreytt. Með von um farsæla niðurstöðu,“ segir í yfirlýsingu sem send var á foreldra í gær en undir hana rita stjórn knattspyrnudeildar og barna og unglingaráðið sem sagði sig frá störfum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Breiðablik hefur áhuga á Benedikt Warén

Breiðablik hefur áhuga á Benedikt Warén
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Fjarvera Hareide í dag vekur athygli – Þorvaldur lætur ekki ná í sig til að ræða framtíðina

Fjarvera Hareide í dag vekur athygli – Þorvaldur lætur ekki ná í sig til að ræða framtíðina
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Rosalegir sautján dagar hjá Arne Slot – Sex erfiðir og áhugaverðir l eikir

Rosalegir sautján dagar hjá Arne Slot – Sex erfiðir og áhugaverðir l eikir
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Segir frá rauðu flaggi í fari Ten Hag – Tóku eftir því þegar þeir hittu hann í byrjun tíma hans hjá United

Segir frá rauðu flaggi í fari Ten Hag – Tóku eftir því þegar þeir hittu hann í byrjun tíma hans hjá United
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Norska undrabarnið ætlar ekki að færa sig nema að honum verði lofaður spiltími

Norska undrabarnið ætlar ekki að færa sig nema að honum verði lofaður spiltími
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Dregið í umspilið í dag – Mikið undir fyrir íslenska landsliðið

Dregið í umspilið í dag – Mikið undir fyrir íslenska landsliðið
433Sport
Í gær

Romano uppljóstrar því hvaða stöðu Amorim vill kaupa í fyrst

Romano uppljóstrar því hvaða stöðu Amorim vill kaupa í fyrst
433Sport
Í gær

Fékk á sig fúkyrðaflaum fyrir klæðnað í jarðarför Liam Payne – Sagan er hins vegar falleg og hreyfir við fólki

Fékk á sig fúkyrðaflaum fyrir klæðnað í jarðarför Liam Payne – Sagan er hins vegar falleg og hreyfir við fólki