Starfslokasamningur dómsmálaráðherra við Harald Johannessen fyrrverandi ríkislögreglustjóra nemur alls 57 milljónum króna með launatengdum gjöldum. Ekki er gert ráð fyrir sérstakri fjármögnun samningsins, þar sem hann er sagður rúmast innan fjárveitinga málaflokksins.
Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn fjárlaganefndar.
Ef Haraldur hefði setið út skipunartíma sinn til 2023, hefði það kostað 80.5 milljónir án launatengdra gjalda, en 104.6 milljónir með launatengdum gjöldum.
Fjárhæðir samningsins hljóða því upp á 54% af kostnaði við laun út skipunartímann að teknu tilliti til launatengdra gjalda.
Hinsvegar hefði Haraldur aðeins fengið greidda 12 mánuði ef embætti ríkislögreglustjóra hefði verið lagt niður, líkt og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, sagði að kæmi til greina.
Nefnt var í gær að ekki væri ljóst hvort samningurinn væri löglegur, þar sem í lögum um opinbera starfsmenn segir að óski starfsmaður sjálfur eftir því að hætta, fyrirgeri hann rétti sínum um að fá greidd laun út skipunartíma sinn, en sem kunnugt er óskaði Haraldur eftir því að hætta sjálfur.
Ekki er hægt að reka opinbera starfsmenn nema að undangengnum tveimur viðvörunum eða stórfelldum brotum í starfi, og því voru starfslokin gerð á grundvelli starfslokasamnings samkvæmt svarinu og að frumkvæði Haraldar.