fbpx
Fimmtudagur 25.júlí 2024
Fréttir

Íslendingur trylltist í Kaupmannahöfn: Stakk mann í hálsinn á Strikinu

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 5. desember 2019 16:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðastliðið laugardagskvöld fékk Ísland ekki góða landkynningu en Íslendingur stakk þá mann með hníf á Strikinu í Kaupmannahöfn. Danski miðillinn Ekstra Bladet greinir frá þessu en Íslendingurinn var handtekinn fyrir utan Burger King á Ráðhústorginu stuttu eftir árásina.

„Ég og vinur minn sáum gerandann, hann var stór og húðflúraður íslenskur maður. Hann hafði legið í slagsmálum við annan mann á jörðinu stuttu áður,“ sagði sjónarvottur í samtali við Ekstra Bladet. „Íslendingurinn stakk manninn í hálsinn sem lá á jörðinni.“

Ábyrgir borgarar í Kaupmannahöfn voru snarir í snúningum og hringdu um leið í lögregluna með ábendingar um árásina. Lögreglan var þá fljótlega komin á staðinn. „Við náum honum í sömu andrá og hann er að kasta hnífnum í ruslið við Burger King,“ segir lögreglumaður.

Sjónarvottar Ekstra Bladet segja að handtakan við Burger King „hafi verið dramatísk“ en samkvæmt vitni kom það í ljós að Íslenski maðurinn var blóðugur eftir handtökuna. „Það voru um 20 lögreglumenn á staðnum sem héldu fólki frá aðstæðunum,“ segir eitt vitnið.

Lögreglan staðfesti það við danska fjölmiðla um að fórnarlambið hafi verið skorið í hálsinn. „Hann er ekki í lífshættu en hann liggur á spítala,“ sagði lögreglan í tilkynningu sinni en búið er að handtaka mann sem grunaður er um verknaðinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fjársöfnun hafin til stuðnings fjölskyldu Sigurðar – Tvö fötluð börn hans þurfa mikla ummönnun

Fjársöfnun hafin til stuðnings fjölskyldu Sigurðar – Tvö fötluð börn hans þurfa mikla ummönnun
Fréttir
Í gær

Tveir ókunnugir menn voru skráðir á heimili hennar – Ekki þarf að fá samþykki eiganda eignarinnar

Tveir ókunnugir menn voru skráðir á heimili hennar – Ekki þarf að fá samþykki eiganda eignarinnar
Fréttir
Í gær

Hrollur fór um Davíð: „Ég hef upplifað það að vera báðum megin við borðið“

Hrollur fór um Davíð: „Ég hef upplifað það að vera báðum megin við borðið“
Fréttir
Í gær

Sorg á Egilsstöðum – Mirabel fannst dáinn

Sorg á Egilsstöðum – Mirabel fannst dáinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Aftur reynt að brjótast inn í hraðbankann á Völlunum – „Peningahólfið er mjög rammgert“

Aftur reynt að brjótast inn í hraðbankann á Völlunum – „Peningahólfið er mjög rammgert“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mikið kókaín í sjónum við Ísland – Hákarlar verða blindir

Mikið kókaín í sjónum við Ísland – Hákarlar verða blindir