Það getur tekið mann allt að klukkustund að ná góðri sjálfsmynd. Maður leitar að réttu birtunni, passar að hafa rétta pósið og reynir að finna eina góða mynd af þessum hundrað sem maður tók.
Það á ekki við kínversku fyrirsæturnar fyrir netverslunina Taobao en þær geta gert allt að 30 stellingar á einni mínútu. Þær hreyfa sig nánast eins hratt og myndavélin smellir af.
Myndbönd af þessu ótrúlega ferli hafa vakið mikla athygli og hefur eitt þeirra fengið yfir 2,7 milljón áhorf.
Ótrúlegt!