Rjúpnaveiðitímabilið er farið að styttast í annan endann. Það eru bara eftir föstudagur og laugardagur til að fara á rjúpu. Margir hafa fengið í jólamatinn en einn og einn fáa fugla eins og er en það getur allt gerst síðustu dagana sem má skjóta.
Margir ætla að nýta þessa tvo daga sem má skjóta til að reyna að fá jólamatinn. Veiðin hefur verið misjöfn eftir landshlutum en margir hafa fengið vel í matinn.
,,Það hafa verið veiðimenn hjá okkur í Breiðdal og fengið góða veiði flestir,“ sagði Þröstur Elliðason þegar við inntum hann eftir rjúpnaveiði í Breiðdal það sem af er rjúpnaveiðitímabilinu.
Við fréttum líka af veiðimönnum sem voru á Öxi fyrir skömmu og fengu 25 fuglar nokkrir saman. En það er ennþá möguleiki, það eru eftir tveir dagar föstudagur og laugardagur. Aldrei segja, enn er möguleiki að ná í fugla í jólamatinn þetta árið.,
Mynd. Einar Guðnason í góðum félagsskap með fugla.