Dalo og Quintana eru sautján ára par og voru að eignast sitt fyrsta barn. Dalo var að sjálfsögðu viðstaddur fæðinguna ásamt myndavélum. En það var ekki verið að taka myndir fyrir fjölskyldualbúmið heldur voru þetta myndavélar frá hollenska raunveruleikaþættinum „Vier Handen Op Eén Buik“ eða „Fjórar hendur á bumbu.“
Viðbrögð Dalo við fæðingunni hafa vakið mikla athygli en þau eru vægast sagt dramatísk og sprenghlægileg.
Horfðu á myndbandið.
Hins vegar endar sagan ekki hér en síðar í þættinum var tekið DNA próf og niðurstaðan sýndi að Dalo er ekki líffræðilegur faðir barnsins. Hann fór í uppnám við að heyra fréttirnar og rauk út um dyrnar. Sem bætur fer sættist unga parið og eru enn þá saman.