Juventus er sagt ætla að skoða stöðu Manchester United er varðar Paul Pogba, miðjumann félagsins. Miðjumaðurinn hefur sjálfur sagt, að hann vilji fara.
Hvorki Real Madrid né Juventus lögðu fram tilboð síðasta sumar þar sem United harðneitaði að selja.
Pogba lék með Juventus til 2016 en þá greiddi Manchester United, um 90 milljónir punda fyrir þennan franska landsliðsmann.
Pogba er meiddur þessa stundina og hefur verið fjarverandi í tæpa tvo mánuði, sagt er að Juventus muni spyrjast fyrir um hann á næstu vikum.
Ítalskir miðlar segja að Juventus muni kanna hug United þegar rætt verður um Mario Mandzukic, sem er einn af þeim sem United skoðar að fá í janúar.