Þegar þú ert með mikinn kvíða þá getur það verið erfitt að fara í gegnum daginn, hvað þá að halda hreinu heimili.
Sian McLean er 22 ára og þekkir það vel hvað kvíði getur haft mikil áhrif á hennar daglega líf. Hún fékk nýlega mjög slæmt kvíðakast og opnar sig um það í Facebook-hópnum We Love Mrs Hinch.
Þar segir hún að kvíðinn hafi „náð tökum á henni.“ Hún deildi fyrir og eftir myndum af heimili sínu.
„Kvíðinn náði tökum af mér, missti allan metnað. Ég ákvað að því myndi ljúka í dag, ég á mikið eftir en ég er rosalega stolt af mér,“ skrifaði hún með myndunum.
Sian segir þrifin hafa hjálpað andlegu heilsu sinni.
Mörg hundrað manns hafa líkað við færslu Sian og tengja margir við hana.
„Vel gert. Kvíðinn náði þér ekki, hann kom, hann fór, þú vannst,“ skrifaði einn netverji.
„Þetta er magnað, þú ættir að vera svo stolt af þér. Ég glími við þunglyndi og kvíða og þekki það að missa algjörlega allan metnað,“ skrifaði annar.