Hegðun foreldra í kringum íþróttir barna sinna getur stundum verið vafasöm og ekki allir sem gera sér grein fyrir því að þeir eru fyrirmyndir. Æsingur, pirringur og reiði eiga það oft til að ráða ríkjum í staðinn fyrir jákvæðni, virðingu og vinsemd.
Valkyrja S. Á. Bjarkardóttir ræðir um hegðun foreldra í kringum íþróttir ungra barna í pistli í Kvennablaðinu og spyr hvort foreldrar séu meðvitaðir um hegðun sína.
Við stöndum tryllt á hliðarlínunni, látum öllum illum látum, görgum jafnvel á börnin að gera svona eða hinseginn og dómarinn fær að heyra það: „Sástu ekki brotið dómari? Andskotinn er þetta!“ Pressan af okkar hálfu á þau er algjör.
Hún segir að við gleymum okkur stundum algjörlega og gleymum að þetta séu lítil börn í stórum heimi sem vilja láta draumana sína rætast. „Er þetta sem við viljum? Eru þetta fyrirmyndirnar sem við ætluðum að vera?“
Valkyrja segir að það sé mikilvægast að sýna börnunum athygli og virðingu.
„Kæru foreldrar sjáum frekar það jákvæða heldur en að einblína á það neikvæða. Verum til staðar, verum baklandið og kletturinn þeirra.“
Þú getur lesið pistillinn í heild sinni í Kvennablaðinu.