„Ég varð hvítur í framan, þetta var allt svo steikt allt saman,“ sagði fjölmiðlamaðurinn Auðunn í viðtali á Brennslunni á FM957 í morgun. Þar segir hann söguna af því hvernig hann uppgötvaði þjófnaðinn. Hann mætti til vinnu í gær og ætlaði að kíkja á Instagram í símanum sínum en þá var eins og hann hefði skráð sig út af aðgangnum sínum.
„Ég ætlaði bara að fara í gegnum Facebookið eins og ég geri oft, því ég mundi ekki lykilorðið. Þá kom bara nýr reikningur sem var @blondalaudunn með mynd af mér, engan follower, ekki að followa neinn og engar myndir. Ég vissi ekkert hvað var að gerast. Þá var þetta það vel gert hjá þessum hakkara að hann eyddi mér útaf mínum eigin reikning og bjó til nýjan reikning fyrir mig.“
Auðunn fór í tölvudeildina í Vodafone til að leita aðstoðar í þessu erfiða máli. Starfsmennirnir reyndu að hjálpa honum í þrjá tíma en ekkert gekk.
„Það gæti verið að hann hafi einhvern veginn náð að sannfæra Instagram um að ég kæmist ekki inn á mailið mitt, þetta var mjög steikt sko.“
Þáttastjórnandi Brennslunnar segir að hann hafi tekið eftir þjófnaðinum á reikningnum á meðan hann var í gangi. Hann segist hafa séð myndirnar hverfa, hver á fætur annarri, þangað til ekkert var eftir. „Þetta er viðbjóður, maður er gjörsamlega varnarlaus,“ sagði Auðunn en hann reyndi að fá hjálp frá fólki úti í bæ.
„Þetta hefði tekið mun lengri tíma nema konan mín þekkir einstakling í New York sem þekkir einhvern sem er háttsettur hjá Instagram, það var það sem bjargaði þessu. Þá var bara hægt að tala við einhvern í síma.“