,,Það gekk ágætlega og konan fékk fékk sína fyrstu rjúpu um ævina, enda nýbyrjuð í sportinu,“ sagði Helgi Jóhannesson á Akureyri sem fór á rjúpu fyrsta daginn eins og fleiri landsmenn í gær Veðurfarið er hagstætt til veiði þessa dagana og kjörið að labba og fá sér ferskt loft.
,,Fengum nokkrar rjúpur en það var ekki mikið af fugli,“ sagði Helgi ennfremur.
Veiðiskapurinn virðist hafa gengið vel víða, margir á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði en fuglinn var styggur. Enda alveg snjólaust svo langt sem augað eygir víða, en svona er þetta bara.
Og næstunni er spáð fínu veðri en hörku frosti.
Mynd. Eydís Elva Þórarinsdóttir með sína fyrstu rjúpu. Mynd Helgi