Thelma Hafþórsdóttir Byrd hefur verið að syngja frá því hún man eftir sér. Hún kom fyrst almennilega fram í Bandinu hans Bubba 2007-2008 og endaði í þriðja sæti. Thelma frumflutti nýja lagið sitt „Humming my song“ í gærmorgun í þætti Ívars Guðmunds á Bylgjunni.
„Lagið fékk frábærar móttökur sem gladdi mitt litla kántrý-hjarta. Lagið er úr smiðju Magga en ég á textann. Lagið er fyrsta smáskífan af væntanlegri breiðskífu,“
segir Thelma. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan: