Samkeppniseftirlitið hefur sent frá sér tilkynningu um leiðréttingu. Hún er eftirfarandi:
Í pistli Innherja í Viðskiptablaði Morgunblaðsins er farið rangt með í frásögn af rannsókn Samkeppniseftirlitsins á undanþágubeiðni vegna samstarfs Eimskipafélagsins og Royal Arctic Line (RAL).
- Í blaðinu er sagt að tilkynnt hafi verið um samstarfið í byrjun árs 2016. Hið rétta er að Samkeppniseftirlitinu barst undanþágubeiðni vegna samstarfsins þann 9. maí 2017, eða rúmu ári síðar en haldið er fram í blaðinu.
- Ranghermt er að niðurstaða rannsóknarinnar hafi legið fyrir í september 2019. Hið rétta er að ákvörðunin lá fyrir þann 17. apríl 2019, sbr. ákvörðun nr. 13/2019, sem aðgengileg er á heimasíðu eftirlitsins. Í framhaldinu kærði Samskip ákvörðunina til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem úrskurðaði í málinu í september sl. Sú meðferð frestaði hins vegar ekki réttaráhrifum ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins.
- Í blaðinu er látið í veðri vaka að skipafélögin hafi þurft að bíða í 1.334 daga eftir niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins. Hið rétta er að það liðu 111 virkir dagar frá því að Samkeppniseftirlitinu barst undirritað eintak af umræddum samstarfssamningi og þangað til að ákvörðunin lá fyrir. Undirritað eintak af samstarfssamningi var ekki afhent samhliða undanþágubeiðninni.
Það liðu hins vegar 44 virkir dagar frá því Samkeppniseftirlitið fékk í hendurnar síðustu nauðsynlegu gögn frá undanþágubeiðendum og þangað til að ákvörðunin lá fyrir. Viðkomandi fyrirtæki bera ábyrgð á því að rökstyðja og leggja fram nauðsynleg gögn til stuðnings undanþágubeiðni sinni. Fyrr er ekki unnt að leggja fullnægjandi mat á beiðnina.
Framangreindri umfjöllun er sett fram til stuðnings því að breyta þurfi samkeppnislögum. Samkeppniseftirlitið fagnar málefnalegri umræðu um samkeppnismál og mögulegar breytingar á samkeppnislögum. Það er hins vegar mikilvægt að slík umfjöllun byggi á réttum upplýsingum.