Patrice Evra, fyrrum bakvörður Manchester United og Juventus var gestur Sky Sports yfir leik Sheffield United og Arsenal í gær. Þar unnu heimamenn í Sheffield góðan sigur.
Evra var beðinn um að velja draumalið sitt með samherjum úr þessum tveimur liðum af ferlinum.
Evra átti bestu ár sín hjá Manchester United og langar honum að fara að starfa aftur fyrir félagið.
Evra velur átta leikmenn frá tíma sínum hjá United en mesta athygli vekur vlaið á Ji-Sung Park og Carlos Tevez.
Liðið er hér að neðan.