Helgi Magnússon ásamt fleiri aðilum, hafa keypt helmings eignarhlut 365 miðla í Torgi, sem er útgáfufélag Fréttablaðsins. Fréttablaðið greinir frá. Hefur Ingibjörg Pálmadóttir fjárfestir því selt allan sinn hlut í Fréttablaðinu. Helgi hafði fyrr á árinu keypt helmingshlut í Torgi en sameina á rekstur Torgs og Hringbrautar, hvers sameining er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og Fjölmiðlanefndar.
Í fyrsta skipti í 16 ár á því hvorki Jón Ásgeir Jónsson, eða Ingibjörg Pálmadóttir, hlut í fjölmiðli.
Ólöf Skaftadóttir, annar ritstjóri Fréttablaðsins, hefur látið af störfum, en hún sagði starfi sínu lausu í ágúst eftir sjö ára starf. Í hennar stað hefur verið ráðinn Jón Þórisson lögfræðingur, sem verður ritstjóri og ábyrgðarmaður Fréttablaðsins ásamt Davíð Stefánssyni, en Jón hefur störf í dag.
Framkvæmdastjóri Torgs, Jóhanna Helga Viðarsdóttir, verður nú forstjóri og útgefandi Torgs. Verður starfsemi Hringbrautar flutt á Hafnartorg þar sem ritstjórn Fréttablaðsins er til húsa.
Þá mun Guðmundur Örn Jóhannsson verða framkvæmdastjóri sölu, markaðsmála og dagskrárgerðar hins sameinaða fyrirtækis og verður Sigmundur Ernir Rúnarsson áfram sjónvarpsstjóri.
Þá segir Fréttablaðið einnig að eigendur Hringbrautar ætli að leggja fyrirtæki sitt inn í Torg og eignast hlutabréf í félaginu, en þeir eru Sigurður Arngrímsson og áðurnefndur Guðmundur Örn. Aðrir hluthafar verða Jón Þórisson og Helgi Magnússon sem verður stjórnarformaður Torgs ehf.