Leikarinn Joaquin Phoenix fer með hlutverk Jókersins í samnefndri kvikmynd sem hefur slegið í gegn undanfarnar vikur. Joaquin hefur verið vegan síðan hann var þriggja ára gamall. Hann segir ástæðuna fyrir því í viðtali við Brut.
„Ég hef verið vegan síðan ég var þriggja ára gamall. Á þeim aldri vorum við systkinin vitni að fiski vera drepinn á mjög hrottalegan og ofbeldisfullan hátt. Og það var bara ótrúlega augljóst að það var eitthvað sem við hvorki vildum taka þátt í né styðja. Fyrir mér er þetta bara augljóst. Ég vil ekki valda annarri lifandi, hluttekningarsamri (e. empathetic) skepnu sársauka. Ég vil ekki taka börnin hennar í burtu frá henni. Ég vil ekki neyða hana til að vera innandyra og fita hana, einungis til að slátra henni. Það er fáránlegt og frumstætt,“ segir Joaquin.
Leikarinn tók nýlega þátt í mótmælum með Be Fair Be Vegan í Kanada, en hann var staddur í landinu til að kynna Joker á kvikmyntahátíð í Toronto.
Horfðu á myndbandið hér að neðan.