Sony hefur loksins gefið út fyrstu stikluna fyrir nýju Jumanji kvikmyndina sem ber heitið Jumanji: Welcome to the Jungle. Aðalhlutverkin skipa Dwayne ‚The Rock‘ Johnson, Jack Black, Kevin Hart og Karen Gillan.
Nýja Jumanji myndin er ekki endurgerð né framhald af upprunalegu myndinni sem kom út árið 1995 með Robin Williams í aðalhlutverki. Nýja myndin fjallar um fjóra unglinga í eftirsetu sem dragast inn í Jumanji spilið og taka þau á sig nýtt form eða „avatar“ form í spilinu. Þau fara í hættulegan leiðangur í leit af gimsteini sem er falinn í frumskóginum. Þeir sem leika aðalhlutverkin eru ekki eldri útgáfur af unglingunum, heldur allt aðrar manneskjur. Eins og unglingurinn sem breytist í persónu Jack Black er kvenkyns í raunveruleikanum.
Jumanji: Welcome to the Jungle kemur í kvikmyndahús í desember.
Sjá einnig:
Upptökur á nýrri Jumanji bíómynd: Umdeild ljósmynd frá tökustað fær harkalega gagnrýni