Mario Mandzukic og Callum Wilson eru báðir á óskalista Manchester United í janúar. Samkvæmt heimildum Sky Sports.
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United vill fá inn sóknarmann í janúar.
Honum mistókst að fá menn inn fyrir Romelu Lukaku og Alexis Sanchez í sumar, hann vildi losna við báða.
Mandzukic er til sölu hjá Juventus en ekki er víst er að Bournemouth sé til í að selja Wilson.
Marcus Rashford hefur ekki fundið taktinn á þessu tímabili og Solskjær leitar að vopnum í lið United.