Þegar Allison Kimmey sagði börnunum sínum að það væri kominn tími til að fara upp úr sundlauginni varð dóttir hennar svo fúl að hún sagði við bróður sinn „mamma er feit.“ Allison ákvað að kenna þeim lexíu. Eftir að þau komu heim þá vildi Allison spjalla aðeins við börnin.
„Sannleikurinn er sá að ég er ekki feit. Það ER enginn feitur. Það er ekki eitthvað sem þú ERT. En ég er MEÐ fitu. Við erum ÖLL með fitu. Hún verndar vöðvana og beinin okkar og gefur okkur orku,“
sagði Allison við börnin sín. Hún kenndi börnunum sínum að „feitur er ekki ljótt orð á heimilinu okkar.“ Þó svo að Allison geti ekki stjórnað því hvað gerist utan heimilisins og hvað krakkarnir heyra í skólanum, þá er hún ákveðin í því að heima hjá henni verður fólk ekki kallað feitt sem móðgun.
„Það er vinnan okkar að halda áfram að vera háværasta, stuðningsríkasta, jákvæðasta og stöðugasta röddin sem þau heyra,“
sagði Allison. Hún deildi þessu á Instagram og hefur færslan vakið mikla athygli.