Það stefnir í að Manchester United mæti með verulega laskað lið til leiks gegn Arsenal á mánudag.
Paul Pogba snéri aftur eftir meiðsli í vikunni en ökkli hans hefur bólgnað mikið, eftir sigur á Rochdale í deildarbikarnum.
Það er tæpt að Pogba geti spilað gegn Arsenal á mánudag en vonin er þó til staðar.
Það eru ekki verstu fréttirnar af Pogba fyrir United í dag, því ítalskir fjölmiðlar segja hann ætla að koma sér burt í janúar.
Pogba reyndi að fara frá United í sumar án árangur, nú ætlar hann að vera með læti til að komast burt ef marka má ítalska miðla.
Juventus vill kaupa Pogba aftur og mun samkvæmt ítölskum miðlum