Páskastjarnan Guðný María var að gefa út nýtt lag og tónlistarmyndband við lagið. Lagið heitir „Ekki hjá Einari“ og er ástarlag sem fjallar um í stuttu máli að persónan í laginu vilji aðeins vera með ákveðnum aðila, en ekki Einari, Arnaldi eða Eyjólfi.
Guðný María samdi bæði lag og texta.
Horfðu á tónlistarmyndbandið hér að neðan.