Tónlistargyðjan Beyoncé hefur fætt tvíbura. Á fimmtudaginn sást til Jay Z og dóttur þeirra Blue Ivy á sjúkrahúsi í Los Angeles. Það er óvíst nákvæmlega hvenær þeir fæddust og ekki er búið að tilkynna hvaða kyn tvíburarnir eru. Á föstudaginn sást til konu fara inn á sjúkrahúsið með blómvönd og tvær stórar blöðrur í laginu eins og barnafætur, ein blaðran var blá og hin bleik. Ef maður skoðar myndina betur sést skrifað „B+J“ á umslagið með blómvendinum.
Nokkrir erlendir miðlar hafa staðfest tíðindin, þar á meðal Entertainment Weekly E! Online og People. Hins vegar hafa Beyoncé og eiginmaður hennar Jay Z ekki staðfest sjálf fréttirnar.
Þau eiga fyrir eina fimm ára stúlku, Blue Ivy, sem er núna orðin stóra systir. Við óskum Carter fjölskyldunni innilega til lukku.