Í gær lýstu átta af níu lögreglustjórum á Íslandi yfir vantrausti á Harald Johannessen ríkislögreglustjóra og töldu hann óstarfhæfan. Þar á meðal formaður Lögreglustjórafélagsins, Úlfar Lúðvíksson. Aðeins Ólafur Helgi Kjartansson á Suðurnesjum kaus að taka ekki undir yfirlýsinguna.
Þá samþykkti formannafundur Landssambands lögreglumanna einnig vantraust á ríkislögreglustjóra í gær og ljóst að staða Haraldar er erfið, þar sem skorað er á hann að stíga til hliðar. Er viðtal við Harald í Morgunblaðinu sagt kornið sem fyllti mælinn.
Mál Haraldar var rætt á ríkisstjórnarfundi sem hófst í morgun. Áslaug fundaði einnig með Haraldi. Eftir fundinn sagði dómsmálaráðherra að Haraldur myndi ekki víkja, en skipulagsbreytingar innn lögreglunnar myndu taka örfáar vikur í framkvæmd:
„Ég átti fund með ríkislögreglustjóra í morgun og vonum við að það samtal haldi áfram. Ég hef nú þegar sett af stað vinnu í ráðuneytinu, sem fór af stað strax í síðustu viku og það var sent bréf til lögreglustjóra, ríkislögreglustjóra, lögreglumanna og annarra hlutaðeigandi,“
hefur mbl.is eftir dómsmálaráðherra, sem sagði Harald ekki hafa ljáð máls á því hvort hann ætlaði að stíga til hliðar.
Áslaug vildi ekki meina að hagsmunir Haraldar væru teknir framyfir hagsmuni lögreglunnar:
„Hagsmunir lögreglunnar verða alltaf teknir fram fyrir og ég vona að niðurstaða þessarar vinnu muni leiða það af sér að við getu mgert hér skipulagsbreytingar sem eru bæði góðar fyrir borgana og ekki síst lögregluna.“