Newcastle 0-0 Brighton
Síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni er nú lokið en leikið var á St. James’ Park.
Newcastle fékk Brighton í heimsókn í sjöttu umferð en það var ekki brjálað fjör í lokaleiknum.
Áhorfendur fengu ekki mikið fyrir sinn snúð en ekkert mark var skorað og markalaust jafntefli niðurstaðan.