Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri hefur verið mikið í umræðunni eftir að hann sagði gagnrýnina sem embættið hefur fengið að undanförnu vera hluta af markvissri rógsherferð þar sem markmiðið sé að hrekja hann úr embætti. Þetta kom fram í forsíðufrétt Morgunblaðsins í gær.
Össur Skarphéðinsson er einn þeirra sem hafa tjáð sig um málið en hann gerði það í færslu á Facebook. Hann segir að það virki galið að spilling ríki innan lögreglunnar.
„Ríkislögreglustjóri fullyrðir í dag í viðtali við dagblað sem aldrei lýgur að spilling ríki innan lögreglunnar. Þetta virkar galið en engar forsendur hef ég til að efast um að ríkislögreglustjóri sé með réttu ráði. Viðtalið ber líka með sér að hin fordæmalausa og sögulega yfirlýsing um spillta lögreglu hafi verið sett fram að yfirlögðu ráði.“
Össur veltir því fyrir sér hvernig nýji dómsmálaráðherrann, Áslaug Arna, mun bregðast við þessu.
„Hún getur ekki setið aðgerðalaus. Í því fælist að hún líti á ríkislögreglustjóra sem marklausan embættismann. Einstaklingur sem dómsmálaráðherra tekur ekki mark á getur hins vegar ekki verið ríkislögreglustjóri. Hún verður því að bregðast við með einhverjum hætti. Nýr dómsmálaráðherra verður annaðhvort að láta rannsaka hvaða rök liggja að baki svo alvarlegri ásökun eða skipta um ríkislögreglustjóra með hraði. Hið eina sem hún getur ekki er að láta einsog ekkert hafi gerst. Málið er of alvarlegt til þess. Ef rannsókn leiðir í ljós að yfirlýsing ríkislögreglustjóra á við rök að styðjast er gott til að þess að vita að nýi dómsmálaráðherrann er vösk og líkleg til að láta hendur standa fram úr ermum við að hreinsa til í löggunni. Ef niðurstaðan er á annan veg verður staða ríkislögreglustjóra væntanlega auglýst á næstunni.“