Reykjavíkurborg hefur að loknu umfangsmiklu samkeppnisviðræðuferli gengið til samninga við hugbúnaðarfyrirtækið Hugvit hf. um kaup á nýju upplýsingastjórnunarkerfi líkt og Eyjan hefur áður greint frá.
Sjá nánar: Reykjavíkurborg innleiðir nýtt upplýsingastjórnunarkerfi
Útboðið var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu þar sem sex aðilar tóku þátt í forvali. Þrjú fyrirtæki stóðust forvalið, Advania, Hugvit og M-Files. Lausn Advania uppfyllti hinsvegar ekki kröfur Reykjavíkurborgar og M-Files sagði sig frá útboðsferlinu.
Nú liggur fyrir kostnaður við verkið, en tilboð Hugvits hljóðaði upp á tæpan einn milljarð króna, samkvæmt svari Reykjavíkurborgar við fyrirspurn Eyjunnar:
„Heildartilboðsfjárhæð er 969.715.172 kr. án vsk. til tíu ára og er innleiðingarkostnaður hluti af þeirri fjárhæð. Tilboðið er 7,5% undir kostnaðaráætlun.“
Nýja kerfið mun hljóta nafnið Hlaðan og leysir af hólmi kerfi sem var innleitt skömmu fyrir aldamót:
„Helstu kerfi sem Hlaðan leysir af hólmi er annars vegar aðalskjalakerfi borgarinnar sem er GoPro er byggir á Lotus gagnagrunnum. Það leysir einnig af hólmi kerfi sem verið hefur í notkun hjá embættum skipulags- og byggingarfulltrúa og heitir Erindreki. GoPro var fyrst innleitt í Ráðhúsi Reykjavíkur og tekið formlega í notkun þar 1. janúar 1999. Kerfið var síðan tekið í notkun á nokkurra ára tímabili, þar á eftir, hjá miðlægum sviðsskrifstofum borgarinnar. Nokkrar undirstofnanir hafa jafnframt nýtt kerfið. Hlöðunni er ætlað mun umfangsmeira hlutverk en eldri kerfin og mun eftir innleiðingu leysa af nokkur smærri kerfi. Hlöðunni er ætlað að halda utan um fleiri verkefni en fyrri kerfi og gert er ráð fyrir hún verði innleidd í stærstan hluta starfsemi borgarinnar, á fleiri starfsstöðum og með mun fleiri notendum en núverandi kerfi.“