Umboðsmaður Jadon Sancho, kantmanns Borussia Dortmund fundaði með Manchester United í sumar.
Sancho er ofarlega á óskalista United og mun félagið halda áfram að reyna að fá hann.
Michael Zorc, stjórnarmaður Dortmund segir frá þessu. Dortmund lét vita að Sancho væri ekki til sölu.
Sancho er 19 ára enskur kantmaður en hann er sagður hafa áhuga á að fara til Manchester United næsta sumar.
Hann ólst upp hjá Manchester City en hefur slegið í gegn hjá Dortmund.