Vigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, greinir frá því á samfélagsmiðlum í dag að hún hafi farið í vettvangskönnun um ýmis hverfi í Reykjavík með varaborgarfulltrúanum Ólafi Kr. Guðmundssyni, sem hefur lengi barist fyrir bættu umferðaröryggi. Vigdís sagði við Eyjuna að báðum hafi þeim fundist niðurstaðan verið sláandi:
„Þetta er bara allt í molum. Þetta er svo mikill bútasaumur, tvöfaldar hraðahindranir með hálfum metra á milli. Ljósmálin í algeru rugli, engar gangbrautir málaðar, búið að taka rauðu og grænu karlana af umferðarljósunum, og ýmislegt annað. Þetta er bara ástand! Göturnar eru holóttar því það er verið að nota þunnt og lélegt malbik. Það er bara engin heildarsýn,“
sagði Vigdís hneyksluð.
Vigdís sagðist hafa farið um Seláshverfið, Grafarvoginn og Norðlingaholtið í dag og til stæði að skoða fleiri staði von bráðar. Hún kom einnig við í Kópavogi, til samanburðar:
„Það var bara eins og við værum komin í annað land! Í Kópavogi eru málaðar gangstéttir, betri skilti og merkingar, betri útskot fyrir strætó og bara allt til fyrirmyndar,“
sagði Vigdís og kallaði eftir átaki í þessum málaflokki hjá meirihlutanum í Reykjavík.
Í svokallaðri Framkvæmdasjá á vef Reykjavíkurborgar má fylgjast með þeim verkum sem eru í frumathugun, forhönnun, hönnunarferli, í framkvæmd, eða er lokið.
Þegar athugað er hversu mörgum framkvæmdum er lokið við umferðargötur í allri Reykjavík fyrir árið 2019, finnast engin verk.
Þegar stöðu verkefnis er breytt í „verk í framkvæmd“ koma upp þrjú verkefni. Það eru gatnaframkvæmdir í Vogabyggð, endurgerð Óðinstorgs og Óðinsgötu, og Týsgötu.
Þegar leitað er eftir verklokum við götur og stíga, kemur aðeins eitt verkefni upp, Sjóvarnargarður á Gelgjutanga.
Öllu fleiri verk koma upp þegar leitað er eftir verkum í framkvæmd við götur og stíga, eða alls 25.