Sumarsmellur í S-Max sal Smárabíós
Smárabíó frumsýnir Baby Driver, nýjustu mynd Edgars Wright, þann 28. júní næstkomandi í hinum nýja S-Max sal og í samstarfi við Senu gefum við miða á myndina. Þrír einstaklingar verða dregnir út og fá tvo miða hver.
Breski leikstjórinn Edgar Howard Wright er vel kunnur kvikmyndaáhugamönnum, en eftir hann liggja meðal annars Shaun of the Dead, Scott Pilgrim vs. the World, The World’s End og Hot Fuzz. Og nú er komið að því að sjá nýjustu afurðina, Baby Driver.
Myndin fjallar um Baby (Ansel Elgort) sem er ungur og efnilegur strákur sem sinnir því hættulega starfi að keyra glæpamenn burt frá vettvangi glæpa. Þrátt fyrir ungan aldur er Baby sá besti í sínu fagi. Þegar hann kynnist draumaprinsessunni (Lily James) og verður ástfanginn, verður hans heitasta ósk sú að láta af glæpum og hefja nýtt líf, en það er ekki auðgert. Glæpakonungur (Kevin Spacey) neyðir hann til að taka þátt í hættulegu verkefni sem ógnar öllu sem Baby er kært og gæti vel orðið hans bani.
Með önnur hlutverk í myndinni fara Jamie Foxx, Jon Bernthal, Eiza González og Jon Hamm.
Baby Driver er þrátt fyrir krúttlegan titil afburðasnjöll og fantavel leikin glæpamynd og frábær tónlist pakkar henni síðan saman í eina bestu og skemmtilegustu mynd sumarsins. Myndin hefur fengið frábæra dóma og er þegar þetta er skrifað með 100 prósent á Rotten Tomatoes og 8,6 í meðaleinkunn á IMDb.
Það eina sem þú þarft að gera til að eiga kost á miðum á Baby Driver í Smárabíói, er að senda tölvupóst með nafni þínu og símanúmeri á ragna@dv.is fyrir 28. júní næstkomandi og taka fram hvaða mynd Edgars Wright er þín uppáhaldsmynd. Ef þú hefur ekki séð neina þeirra, sem er kannski ólíklegt, taktu samt þátt og sendu tölvupóst. Vinningshafar verða látnir vita með tölvupósti fyrir hádegi þann 28. júní.