,,Sumarið var martröð og ég vill ekki upplifa þetta aftur,“ segir Einar Sigfússon sölustjóri Norðurár í samtali við Sporðaköst í Morgunblaðinu og það eru orð að sönnu. Sumarið hefur verið lélegt í fiskmagni og flottar laxveiðiár að gefa lítið af fiski. Flottar veiðiár sem hafa gefið vel í gegnum árin og fiski sleppt í þeim á hverju ári, gefa líka lítið sem ekkert.
Auðvitað var þetta þurrka sumar, lítið snjór eftir veturinn og enginn rigning i allavega 3 mánuði á verstu stöðunum. Það borðar alls ekki gott fyrir veiðimenn og fleiri. En það fór að rigna veiði lagaðist aðeins en ekkert til að tala um. Ein og ein veiðiá tók kipp, hinar voru flestar slappar áfram.
Skellurinn í sumar var ekkert að allra vörum fyrir veiðitímann, fáir voru að tala um hann og ennþá færri vissu eitthvað. Málið er bara það enginn veit neitt um stöðuna í hafinu og það þarf að rannsaka. Svona skellur getur komið aftur og það getur verið stutt i hann. Það veit bara enginn.
Einhver sagðist hafa talið laxafjöldann og það væri helmingi minni laxveiði en í fyrra, sem er helvíti mikið. Málið er að enginn veit neitt eða allavega mjög lítið. Sumarið í sumar er ákveðin lærdómur fyrir okkur. Það getur aftur komið svona sumar og það getur verið stutt í það.
Það ágæt að kasta bara flugunni fyrir töku óðar bleikjur í Fljótunum og fá þær til að taka fluguna þeim er líka að fækka og um að gera njóta þeirra meðan hægt er. Tveggja punda bleikja hefur tekið og henni er sleppt aftur. Svona er bara veiðin en lax stekkur neðar í hylnum hann er ekki í tökustuði. Bleikjan er í tökustuði.
Mynd. Hann er á í Haukadalsá í Dölum.