Kendall Jenner og Kylie Jenner hafa verið harðlega gagnrýndar fyrir nýju fatalínuna sína. Þær hafa gefið út yfirlýsingu í kjölfarið þar sem þær biðjast afsökunar.
Raunveruleikastjörnurnar settu mynd af andlitunum sínum á „vintage“ boli með tónlistargoðsögnum eins og Notorious B.I.G., Tupac, Pink Floyd og Ozzy Osbourne. Bolirnir vöktu hörð viðbrögð og fordæmdu margir systurnar fyrir að setja andlitin sín yfir þekktu tónlistargoðin. Á meðal þeirra sem gagnrýndu systurnar voru Sharon Osbourne og móðir Biggie, Voletta Wallace.
„Ég er ekki viss hver sagði Kylie Jenner og Kendall Jenner að þær mættu gera þetta. Óvirðingin að tala ekki einu sinni við mig eða einhvern tengdan búinu gerir mig ráðþrota. Ég hef ekki hugmynd af hverju þeim finnst í lagi að hagnast á dauða 2pac og sonar míns Christopher. Þetta er óvirðing og ógeðslegt!“ Skrifaði Voletta í færslu á Instagram.
Sharon Osbourne skrifaði á Twitter: „Stelpur. Þið hafið ekki unnið ykkur rétt til þess að mega setja andlit ykkar á myndir með tónlistargoðsögnum. Haldið ykkur við það sem þið kunnið – varagloss.“
Girls, you haven’t earned the right to put your face with musical icons. Stick to what you know…lip gloss. pic.twitter.com/BhmuUVrDBn
— Sharon Osbourne (@MrsSOsbourne) June 29, 2017
Bolirnir hafa verið teknir úr sölu og bæði Kendall og Kylie gáfu út yfirlýsingu á samfélagsmiðlum þar sem þær báðust afsökunar.
— Kendall (@KendallJenner) June 29, 2017