Sonur Þórunnar Lárusdóttur leikkonu og leikstjóra tvíhandleggsbrotnaði eftir að afturdekk á hjólinu hans losnaði. Mbl.is greinir frá þessu.
Þórunn segir það að losa skrúfurnar við dekk á hjólum vera algengan grikk hjá unglingum.
„Hann Kolbeinn Lárus minn var að hjóla með vinum sínum á fimmtudaginn þegar aftara dekkið dettur allt í einu af, með þeim afleiðingum að hann dettur og handleggurinn tvíbrotnar. Hann þurfti að fara í aðgerð til að hægt væri að setja pinna (ft) í höndina svo að þetta grói nú allt saman á réttan hátt. Við biðum dálítið lengi eftir aðgerð og þurfti því eðli málsins samkvæmt að dæla í hann morfíni og þess háttar til að sársaukinn bæri hann ekki ofurliði,“
Þórunn segir þá sem losuðu skrúfurnar á dekkinu ekki gera sér grein fyrir þeim afleiðingum sem það getur valdið.
„Því biðla ég til unglinga, foreldra, kennara og allra þeirra sem geta mögulega haft áhrif að ræða um og brýna fyrir krökkum að þetta sé hættulegt. Kolla mínum líður mun betur núna, þó enn sé stuðst við einhver saklaus verkjalyf. Við erum komin heim, beinin komin aftur í réttar skorður og gróa vonandi fljótt“