Icelandair hefur sagt upp að minnsta kosti 115 flugmönnum og 70 flugstjórum hefur verið tilkynnt að þeir verði lækkaðir niður í stöðu flugmanns. Um 520 flugmenn starfa hjá Icelandair og því er um að ræða afar stóra hópuppsögn. Þetta kemur fram í frétt á RÚV.
Leita þarf aftur til haustmánaða ársins 2008, rétt eftir efnahagshrunið, til að finna sambærilegar uppsagnir hjá Icelandair. Samkvæmt fréttinni búa flugmenn hjá Icelandair við lítið starfsöryggi og hafi einum flugmanni verið sagt upp átta sinnum. Uppsagnir eru oft dregnar til baka en óvíst er hvort sú verður raunin núna, og þá í hvaða mæli.