Henrik Mkhitaryan, miðjumaður Arsenal er á leið til Ítalíu, hann er á leið til Roma á láni.
Mkhitaryan kom til Arsenal fyrir einu og hálfu ári, hann hefur lítið getað.
Miðjumaðurinn frá Armeníu kom í skiptum fyrir Alexis Sanchez en báðir eru nú mættir til Ítalíu. Sanchez var lánaður til Inter í síðustu viku.
Mkhitaryan fer í læknisskoðun hjá Roma í dag og skrifar undir, áður en félagaskiptaglugginn lokar.
Mkhitaryan verður annar leikmaðurinn frá ensku liði á láni hjá Roma, Chris Smalling var lánaður til Roma í síðustu viku.