Óhætt er að segja að Daniel Ferguson, ungur Bandaríkjamaður, hafi slegið í gegn í America‘s Got Talent í gærkvöldi. Sjálfur Simon Cowell missti andlitið þegar Ferguson sýndi atriði sitt.
Eins og sést í meðfylgjandi myndbandi er Ferguson efnileg eftirherma og söng hann lagið Cake By the Ocean sem hljómsveitin DNCE sló í gegn með á síðasta ári.
Í laginu fór Ferguson í hlutverk nokkurra þekktra persóna, einna helst teiknimyndapersóna á borð við Mikka mús, Guffa, Scooby Doo og frosksins Kermit svo dæmi séu tekin. Svo brá hann sér í hlutverk Simon Cowell og er óhætt að segja að Simon sjálfur hafi verið hrifinn – eins og salurinn sem sprakk úr hlátri.
[youtube https://www.youtube.com/watch?v=IaAK0gEoJVk?ecver=1&w=560&h=315]