Chris Smalling, varnarmaður Manchester United er á æfingasvæði félagsins að klára félagaskipti til Roma. Þetta fullyrða ítalskir miðlar.
Sagt er að Smalling og United séu að klára smáatriði til að klára skiptin, Smalling verður lánaður til Roma.
Um leið og öll pappírsvinna er á enda þá mun Smalling fljúga til Ítalíu og gangast undir læknisskoðun.
Eftir komu Harry Maguire var ljóst að Ole Gunnar Solskjær myndi reyna að losa miðverði, hann er með sjö slíka hjá félaginu.
Smalling mun fara á láni í eitt ár en ekki kemur fram hvort Roma hafi svo forkaupsrétt. Smalling verður þá þriðji leikmaður United sem fer til Ítalíu á skömmum tíma, félagið seldi Romelu Lukaku til Inter og Alexis Sanchez er að fara þangað á láni.