Fenerbache vill ganga frá kaupum á Marcos Rojo varnarmanni Manchester United áður en glugginn þar í landi lokar.
Rojo var nálægt því að ganga í raðir Everton á lokadegi gluggans þar í landi fyrir viku.
Glugginn lokar 1 september í Tyrklandi og Fenerbache vill kaupa varnarmanninn frá Argentínu.
Þessi 29 ára varnarmaður á litla möguleika á því að spila hjá United, margir miðverðir eru á undan honum i röðinni hjá Ole Gunnar Solskjær.
United fer ekki fram á hátt kaupverð en launapakki Rojo gæti orðið erfiður baggi.