Leoncie, sem stundum er kölluð Indverska prinsessan eða Ískryddið, gaf út nýtt lag þar sem hún hælir Donald Trump Bandaríkjaforseta. Umrætt lag heitir einfaldlega Donald Trump Song og segir söngkonan sjálf í lýsingu við lagið að Bandaríkjaforsetinn sé beinskeyttur og mikill húmoristi.
„Ef ykkur líkar hann ekki megið þið hoppa í sjóinn,“ segir Leoncie. „Mér er skítsama um hatarana eða aumingjana.“
Í laginu lofsyngur hún einnig forsetafrúna Melaniu Trump og veitir engan afslátt af því að kalla Trump „besta forseta Bandaríkjanna“ í textanum. Einnig segir í laginu að „púkar haldi áfram nornaveiðum sínum“ og vísar hún þar á fjölmiðla og aðra sem kunna ekki að meta manninn sem hefur tvímælalaust betrumbætt Bandaríkin, að hennar sögn.
Gersemina má heyra hér.