Karólína Helga Símonardóttir, varaþingmaður Bjartrar framtíðar, hefur tekið sæti á Alþingi í fyrsta sinn. Í gær flutti hún jómfrúaræðu sína sem fjallaði um styttingu vinnuvikunnar og aðaláherslumál hennar á þingi eru fjölskyldu- og fjölmenningarmál. Karólína tekur sæti Óttarrs Proppé heilbrigðisráðherra á þingi en hann situr nú fund Alþjóða-heilbrigðisstofnunarinnar í Genf.
Þann 10. apríl síðastliðinn missti Karólína sambýlismann sinn. Hann varð bráðkvaddur aðeins 35 ára. Karólína og sambýlismaður hennar höfðu búið saman í þrettán ár og eignast þrjú börn, auk þess átti hann einn son fyrir. Þar sem þau voru ekki gift, hefur Karólína ekki leyfi að sitja í óskiptu búi.
„Þetta er náttúrulega bara úrelt kerfi sem við lifum í,“ sagði Karólína í samtali við Morgunblaðið. Hún segist ekki skilja hvers vegna sambúð til tveggja eða fimm ára sé ekki lögmæt eins og hjónaband.
„Hvernig er hægt að bjóða fólki sem lendir í svona aðstæðum upp á það að þurfa að umbylta sínu eina öryggisneti. Eins og það sé ekki nóg að missa maka sinn,“
segir Karólína og bætir því við að erfðamál á Íslandi eru flókið og erfið og því sé hæpið að ætlast til að umbylta kerfinu á þeim stutta tíma sem hún verður á þingi. „En ég mun þó leggja mig fram um að koma þessu í umræðuna og byrja að leiðrétta þetta.“