fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Eyjan

Geir Haarde hóf störf hjá Alþjóðabankanum í dag

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 1. júlí 2019 18:00

Geir Haarde, þáverandi forsætisráðherra, bað Guð um að blessa Ísland þann 6.október 2008.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og sendiherra Íslands í Washington, tók í dag við stöðu aðalfulltrúa kjördæmis Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna hjá Alþjóðabankanum. Hann kemur til með að stýra skrifstofu kjördæmisins í höfuðstöðvum bankans í Washington um tveggja ára skeið og situr í 25 manna stjórn bankans fyrir hönd kjördæmisins. Ísland er fámennasta aðildarríki bankans sem skipar í stöðu aðalfulltrúa í stjórn hans. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Alþjóðabankinn er stærsta þróunarsamvinnustofnun í heiminum og aðalfulltrúinn gegnir umfangsmiklu samræmingarstarfi kjördæmisins. Alþjóðabankinn hefur lengi verið ein helsta samstarfsstofnun okkar í þróunarmálum og á síðustu árum hefur okkur tekist að koma íslenskri sérþekkingu á framfæri í verkefnum bankans, einkum á sviði jarðhita, fiskimála og jafnréttis- og mannréttindamála,“ segir Guðlaugur Þór, sem tók jafnframt sæti í þróunarsamvinnunefnd bankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir hönd kjördæmisins,“

segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra af þessu tilefni.

Næstu tvö árin kemur í hlut Íslands að halda utan um samstarf kjördæmislandanna og samskipti við skrifstofu kjördæmisins og höfuðborgir landanna, en sérstök deild innan þróunarsamvinnuskrifstofu ráðuneytisins sinnir verkefninu með sjónarmið allra þjóðanna átta að leiðarljósi.

Af þeim fimm stofnunum sem Alþjóðabankinn samanstendur af, fer stór hluti íslenskra framlaga til Alþjóðaframfarastofnunarinnar (IDA) sem veitir fátækustu ríkjum heims styrki og lán á hagstæðum kjörum. Að sögn Þórarinnu Söebech, fulltrúa Íslands á skrifstofu Alþjóðabankans, er endurfjármögnun IDA mikilvægasta verkefnið sem bankinn fæst við um þessar mundir. Af öðrum stórum verkefnum nefnir hún Mannauðsverkefnið, Human Capital Project, sem bankinn kynnti í lok síðasta árs og lýtur að fjárfestingu í mannauði komandi kynslóða.

Milli kjördæmislandanna ríkir samkomulag um að Norðurlöndin fimm útnefni til skiptis aðalfulltrúa í stjórn bankans og leiði á sama tíma samræmingarstarf kjördæmisins. Samræmingarhlutverkið krefst þess að fulltrúar Íslands fylgjast náið með allri starfsemi bankans, geti sett sig efnislega inn í öll helstu mál og myndað ígrundaða afstöðu til þeirra mála sem eru á dagskrá hverju sinni og leitt samræmingu á afstöðu kjördæmisins í málefnum bankans.

Til marks um gífurleg umsvif Alþjóðabankans má nefna að árið 2017 samþykkti bankinn lán og fjárveitingar til verkefna að upphæð 67 milljarða Bandaríkjadala. Verkefni á vegum bankans eru samtals 13.730 í 174 þjóðríkjum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á