ÁBYRGÐIN ER VÍÐTÆK VERKSMIÐJUÁBYRGÐ SEM GILDIR FYRIR BÆÐI FÓLKSBÍLA OG SENDIBÍLA CITROËN.
Örugg gæði Citroën með 5 ára ábyrgð
5 ára ábyrgð Citroën er mikilvægur þáttur í að styrkja samband okkar við Citroën eigendur. Í eigenda og þjónustuhandbók + viðauka við skilmála Citroën finnur þú greinargóða lýsingu á ábyrgðinni, skyldum Citroën og Citroën eigenda, upplýsingar um það sem ábyrgðin nær og nær ekki til, ábyrgð gagnvart gegnumtæringu, ábyrgð á varahlutum, takmörkun ábyrgðar, skýrslur um reglubundið viðhald, ryðvarnareftirlit, skýrslur um endurnýjun kílómetrateljara, síma- og netfangaskrá, upplýsingar um þjónustutíma deilda, auk annarra hagnýtra upplýsinga.
Forsendur ábyrgðar
Til að uppfylla ábyrgðarskilmálana þarf að fara með nýja Citroën bílinn í reglubundið þjónustueftirlit samkvæmt staðli framleiðanda. Forsendur ábyrgðar eru reglulegt þjónustueftirlit á 12 mánaða eða 15.000 km fresti hvort sem kemur á undan. sem kaupandi ber kostnað af.
Viðgerðir sem falla undir ábyrgð
Þú ferð með Citroën bílinn þinn ásamt eigenda og þjónustuhandbók til viðurkennds þjónustuaðila Citroën. Allir viðurkenndir þjónustuaðilar Citroën geta annast viðgerðir sem falla undir ábyrgð.