María Elíasdóttir birti myndir á Facebook-síðu sinni þar sem sést að unnar hafa verið skemmdir á Helgafelli í Hafnarfirði.
Helgafell er vinsælt meðal göngugarpa. Þangað leggja leið sína margir Hafnfirðingar og aðrir íbúar höfuðborgarsvæðisins í frítíma sínum, en fellið þykir ekki erfitt uppgöngu.
María lýsir óánægju sinni með verknaðinn í samtali við DV, en hún segist vera tíður gestur á fellið. Hún bendir á að skemmdarverkin séu nýleg.
„Maður er bara pínu sjokkeruð að sjá þetta, þar sem mikið hefur verið fjallað um svona mál,“ segir María sem telur verkið sé ekki bara eftir einn einstakling „Það er eins og að hér hafi verið hópur að verki, þar sem þetta er heilmikil vinna,“
„Ég setti þetta bara inn í þeirri von um að þetta myndi berast til þeirra sem gerðu þetta og þeir myndu átta sig á því að þetta er ekki í lagi,“
„Þetta er í raun bara barnaskapur, manni dettur í hug að þeir sem hafi gert þetta séu ekkert endilega komin með bílpróf,“ segir María og bætir við: „Þarna voru líka einhverjar typpamyndir sem sýnir nú bara þroskastigið.“
„Manni finnst svo sorglegt að svona sé enn þá að gerast og fólk gæti farið að halda að þetta sé í lagi, sérstaklega ef hingað kæmu útlendingar sem fyndist sniðugt að setja nafnið sitt líka.“
María telur að það muni líklega taka langan tíma fyrir krotið að hverfa. „Þetta er sandsteinn, hann er mjög gljúpur og þess vegna er hægt að krassa svona í hann. Það er mögulega hægt að gera eitthvað í þessu, en þá kemur öðruvísi áferð og það tekur örugglega fjöldamörg ár fyrir þetta að veðrast og verða aftur eins og þetta var.“
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir af skemmdarverkunum.