Félag atvinnurekenda og Rafiðnaðarsamband Íslands undirrituðu kjarasamning í dag. Samningurinn er í öllum aðalatriðum samhljóða samningum FA við VR og Landssamband íslenzkra verzlunarmanna og Grafíu, stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum, sem undirritaðir voru í apríl og maí. Þannig eru launabreytingar og forsendur samninganna þær sömu. Greint er frá á vef Félags atvinnurekenda.
Samið var um styttingu vinnuvikunnar um rúmlega eina og hálfa klukkustund, þannig að virkur vinnutími fari úr 37 stundum og fimm mínútum í 35 stundir og 30 mínútur. Kemur sú breyting til framkvæmda í áföngum, 1. apríl á næsta ári og 1. apríl 2021. Heimilt verður að skipuleggja dagvinnu á tímabilinu 7 til 19. Samningurinn gerir ráð fyrir að atvinnurekandi hafi samráð við starfsmenn um styttingu vinnutímans á hverjum vinnustað.
Samhliða styttingu vinnutímans koma inn í samninginn ný ákvæði um yfirvinnu, sem taka gildi á næsta ári. Hún skiptist framvegis í yfirvinnu 1, sem greiðist með tímakaupi sem samsvarar 1% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu, og yfirvinnu 2, sem er greidd fyrir virkan vinnutíma umfram 41 klst. á viku að meðaltali á launatímabili eða mánuði. Yfirvinna 2 greiðist með tímakaupi sem samsvarar 1,15% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu.