Ferðamönnum hingað til lands í maí hefur fækkað gífurlega frá síðasta ári eða um 23,6 prósent. En sé litið skammt aftur í tímann sést að enn eru ferðamenn hingað til lands miklu fleiri en fyrir örfáum árum. Flestir upplifðu árið 2015 sem mikið ferðamannaár en það ár komu rúmlega 91.000 ferðamenn hingað í maí. Í sama mánuði á þessu ári er fjöldinn 126.309. Það komu líka færri ferðamenn hingað vorið 2016 en í ár. Hins vegar er þessi maímánuðir lakari en síðustu tvö árin.
Þetta kemur fram í úttekt á vefnum turisti.is og tölurnar settar þar frem með skýru og skemmtilegu súluriti.