fbpx
Fimmtudagur 21.nóvember 2024
Eyjan

Ragnar segist alsaklaus af karlrembu: „Óskiljanlegt að gagnrýni mín geti verið skilin á þann veg“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 7. júní 2019 10:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnar Önundarson, sem gagnrýnt hefur forystu Sjálfstæðisflokksins undanfarið, sem andstæðingur innleiðingar þriðja orkupakkans, kallaði Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, ritara og þingmann flokksins, „sætan krakka“ og vöktu þau ummæli hörð viðbrögð. Þá taldi hann Áslaugu þurfa að leita sér sálfræðiaðstoðar í stað þess að sækjast eftir frama innan Sjálfstæðisflokksins, en Áslaug sagðist í útvarpsþætti stefna að því að verða forsætisráðherra einn daginn. Einnig sagði Ragnar Sjálfstæðisflokkinn óheppinn í kvennamálum.

Í vikunni kallaði hann leiðara Ólafar Skaftadóttur, ritstjóra Fréttablaðsins „aumkunarverðan“ en í honum fólst gagnrýni á Ragnar og þann hóp er hann tilheyrir að hennar mati, en hún taldi þeirra skoðanir rykfallnar og eftir þeim væri minnkandi eftirspurn.

„Þeim er greinilega farið að svíða, sem undir sig míga,“ sagði Ragnar um Ólöfu af því tilefni.

Ragnar hefur einnig verið gagnrýndur af Loga Bergmanni Eiðssyni fjölmiðlamanni, en þá taldi Ragnar að Logi væri að misnota aðstöðu sína og sárnaði að Logi hafi kallað hann „karlpung“.

Óskiljanleg gagnrýni

Ragnar vísar því hinsvegar á bug að hann sé að vega að konum með ummælum sínum:

„Mér er með öllu óskiljanlegt að, gagnrýni mín geti verið skilin á þann veg að ég sé að vega að ,,konum”. Sú staðreynd að ungu stjórnmálamennirnir sem ekki hafa valdið verkefnum sínum í Orkupakkamálinu eru konur kemur þessu máli ekkert við !“

segir Ragnar og telur alla gagnrýni á sig tilraun til þöggunar:

„Auðvitað eru vinir þeirra að reyna að koma þeim til varnar og dettur ekkert betra í hug en að gera mér upp andstöðu við ,,ungar konur”, ég er jú andhverfan, ,,gamall karl”. Þetta er hins vegar bara ósköp venjuleg og augljós tilraun til þöggunar. Krafan um að menn ritskoði sjálfa sig og fylgi rétthugsun samtímans er sterk. Vinirnir vilja að ungu stjórnmálamönnunum sé hlíft við gagnrýni. Ungi ritstjórinn á Fréttablaðinu er kona. Það kemur málinu augljòslega ekkert við. Hún hætti sér út á hálan ís í gær og fékk sín svör frá mér. Ætlar ekki einhver að saka mig um árás á konu ?“

Gerir ekki greinarmun á kynjum

Ragnar rifjar einnig upp er hann setti út á mynd af Áslaugu Örnu árið 2017, sem honum fannst ósæmileg, en Áslaug var þar með blautt hár, sem virtist fara fyrir brjóstið á Ragnari þar sem hún væri að sýna „kynveruna“ í sér. Fékk Ragnar á baukinn á samfélagsmiðlum fyrir ummæli sín.

Hann segir nú að slík myndbirting grafi undan trausti Áslaugar sem stjórnmálamanns og gildi einu um hvers kyns viðkomandi sé, því hann hafi einu sinni gagnrýnt Bjarna Benediktsson líka:

„Fb-vinir mínir hafa tekið eftir orðahnippingum mínum og Loga Bergmanns vegna efasemda minna um framgöngu forystu Sjálfstæðisflokksins, sem ég hef verið félagi í í hálfa öld. Logi fór alveg rétt með þegar hann sagði … “hon­um fannst Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, ekki gefa rétta mynd af sér sem stjórn­mála­manni á Face­book”.

Þetta var vegna myndar sem hún birti af sjálfri sèr, sem mér fannst til þess fallin að grafa undan trausti hennar og þar með fylgi flokksins. Ég gerði líka athugasemd þegar formaðurinn kynnti sig sem ,,IceHot1” fyrir nokkrum árum, það fannst mér ekki heldur gott fyrir flokkinn. Engan greinarmun gerði ég því á kynjum.“

Sjá einnigRagnar gerði það aftur:„Glæsilegasta konan er varaformaður og sætasti krakkinn ritari“

Sjá einnig: Áslaug Arna um „óeðlilegan áhuga Ragnars:„Hvað næst? #ekkiveraragnar“

Sjá einnig: Ragnar útskýrir ummæli sín:„Nokkrar viðkvæmar sálir hafa hrokkið í varnarstöðu“

Sjá einnig: Telur Áslaugu eiga að leita til sálfræðings í stað þess að sækjast eftir æðsta frama

Sjá einnig: Ragnar segir leiðara Ólafar „aumkunarverða“ þöggunartilraun – „Þeim er greinilega farið að svíða, sem undir sig míga“

Sjá einnig: Ragnar skammar Loga Bergmann:„Hann var að mínum dómi að misnota aðstöðu sína“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Arion banki sá að sér eftir að upp úr sauð á Fjármálatips

Arion banki sá að sér eftir að upp úr sauð á Fjármálatips
Eyjan
Í gær

Gunnar bendir á sláandi staðreynd um stýrivextina – „Hvergi í veröldinni er auður hinna ríku varinn af eins miklum ákafa“

Gunnar bendir á sláandi staðreynd um stýrivextina – „Hvergi í veröldinni er auður hinna ríku varinn af eins miklum ákafa“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Kosningar: Lilja og Alma takast á um skatta og innviðafjárfestingu

Kosningar: Lilja og Alma takast á um skatta og innviðafjárfestingu
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Bregðast við stjórnarskrárbroti Alþingis – „Þetta er hið raunverulega andlit og arfleifð Sjálfstæðisflokksins“

Bregðast við stjórnarskrárbroti Alþingis – „Þetta er hið raunverulega andlit og arfleifð Sjálfstæðisflokksins“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ragnar segir tíma til kominn að þora að spyrja stóru spurninganna um lífeyrissjóðina – „Við erum þrælar eigin kerfis“

Ragnar segir tíma til kominn að þora að spyrja stóru spurninganna um lífeyrissjóðina – „Við erum þrælar eigin kerfis“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þingkosningar: Lilja segir ríkisstjórnina hafa fjárfest mikið í innviðum – Alma segir innviðskuldina ógna orkuskiptum

Þingkosningar: Lilja segir ríkisstjórnina hafa fjárfest mikið í innviðum – Alma segir innviðskuldina ógna orkuskiptum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 4 um ESB/evru: Þýzkaland tók evru fram yfir sitt ofursterka mark (DM) – hvað segir það okkur?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 4 um ESB/evru: Þýzkaland tók evru fram yfir sitt ofursterka mark (DM) – hvað segir það okkur?