Upp úr sauð á Alþingi í dag þegar frumvarp félagsmálaráðherra um að breytingu á lögum um félagslega aðstoð og almannatryggingar var rætt.
Inga Sæland, þingkona Flokk Fólksins, brast í grát og kvað það mikið óréttlæti að afnema ekki krónu á móti krónu skerðinguna alfarið. Um væri að ræða mikið óréttlæti gegn öryrkjum sem standi eftir, þrátt fyrir að sambærileg skerðing á ellilífeyri hafi verið afnumin.
„Og ég leyfi mér að kasta því fram hér og nú afþví ég ætla nú ekki að tefja umræðuna. Ég stend hér til að berjast gegn fátækt ég stend hér fyrir þjóðfélagshópinn sem ég er búin að tilheyra alla mína ævi. Að þurfa að horfa upp á þessa lítilsvirðingu gagnvart þessum þjóðfélagshópi sýknt og heilagt hér á þessu háa Alþingi. Það er alveg ótrúlegt.“
Þá þurfti Inga að strjúka burtu tár og sagðist ekki hafa vöknað um augun opinberlega síðan í eftirminnilegri ræðu hennar daginn fyrir kjördag. Hún fordæmdi jafnaðarríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir að koma þessari skerðingu á.
„Það getur ekki verið mögulegt að þetta sé löglegt. Það er ekki hægt. Króna á móti krónu. Fátæktargildra. Mismunun. Brot á jafnræði. Það getur ekki verið löglegt, virðulegur forseti.“
Þá tók Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, til máls. Sagðist hann ekki leggja í vana sinn að taka þátt í pólitískum umræðum á þingi, stöðu sinnar vegna. En nú gæti hann ekki komist hjá því.
„Þó ég sé hér forseti og blandi mér ógjarnan í pólitískar umræðu, þá sit ég ekki þegjandi undir rangfærslum og óhróðri af því tagi sem háttvirtur þingmaður Inga Sæland hafði um ríkisstjórn mína og Jóhönnu Sigurðardóttur.“
Benti Steingrímur á að króna á móti krónu hafi verið sett á í tengslum við sérstaka uppbót á lífeyri sem Jóhanna Sigurðardóttir hafi komið á sem félagsmálaráðherra og hafi á sínum tíma verið mikil réttarbót fyrir öryrkja. Þó svo að þessi viðbót hafi verið tekjutengd þá verði að muna að þarna var verið að bæta kjör þeirra sem lakast stæðu á tíma þegar fjármunir ríkis voru afar takmarkaðir.
„Menn þurfa aðeins að kunna hlutina áður en þeir taka upp í sig stór orð og á meðan ég er hér á þingi og hef málfrelsi. ÞÁ SIT ÉG EKKI ÞEGJANDI UNDIR SVONA LÖGUÐU. Jóhanna Sigurðardóttir, einn merkasti félagsmálaráðherra þessarar þjóðar, á annað og betra skilið frá kynsystrum sínum.“
Þá mátti heyra aðra þingmenn taka undir með Steingrími með undirtektarhrópi: HEYR HEYR
Inga steig þá aftur í pontu, greinilega heitt í hamsi, og skoraði á Steingrím að upplýsa sig um meintar rangfærslur hennar. Steingrímur svaraði því til að króna á móti krónu skerðingu bitni á þeim sem aðrar tekjur hafa, ekki þeim sem lökustum fæti standa, þeim sem ekki geta með neinu móti unnið. Steingrímur taldi engan vera að tala máli þeirra sem lökustum fæti standa í þessari umræðu.
Inga spurði þá í andsvari sínu hvort Steingrímur væri orðinn heyrnarlaus. Sjón er sögu ríkari.