„Núna myndi ég fara upp á þig“Lisa Kudrow rifjar upp niðrandi ummæli gestaleikara í Friends
Á dögunum, 13 árum eftir að lokaþáttur Friends var sýndur vestanhafs, greindi Lisa Kudrow, sem lék hina eftirminnilegu Phoebe Buffet,, að hún hafi fengið niðrandi ummæli frá einum gestleikara þáttarins sem sat lengi í henni.
Í viðtali við Andy Cohen sagði Lisa að yfirleitt hafi hún verið ómáluð á æfingum fyrir Friends. Á tökudögum var hún hinsvegar förðuð og send í hárgreiðslu. Í eitt skiptið, þegar hún hafði verið að æfa á móti einum af gestaleikurum þáttarins sagði hann við hana: „Núna myndi ég fara upp á þig.“
Svo virðist sem þetta hafi fengið töluvert á hana þar sem hún viðurkenndi að þessi dónalegu ummæli færu enn fyrir brjóstið á henni. Lisa viðurkenndi þó að einstaklingurinn sem um ræðir hafi ekki verið Charlie Sheen.