fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024
Eyjan

Lúxuslíf Íslendinga: Matthías Imsland – Flugmógúll verður fjárfestir

Auður Ösp
Föstudaginn 31. maí 2019 16:30

Matthías Imsland

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Matthías Imsland er fyrrverandi forstjóri Iceland Express og fyrrverandi aðstoðarmaður Eyglóar Harðardóttur félags- og húsnæðismálaráðherra.

Undanfarin misseri hefur Matthías verið stórtækur í fjárfestingum á fasteignum. DV greindi frá því í maí á síðasta ári að Matthías hefði fjárfest í tíu íbúðum í Vestmannaeyjum í gegnum eignarhaldsfélag sitt, MPI ehf., en heildarkaupverð eignanna er tæplega 130 milljónir króna. Fram kom að Matthías hefði fjármagnað kaupin með hagstæðum lánum frá Íbúðalánasjóði og er lánstíminn í öllum tilvikum 50 ár. Skilyrði fyrir slíkum lánveitingum er að félagið leigi íbúðirnar út til langs tíma og sé ekki rekið í hagnaðarskyni. Þá greindi Stundin frá því stuttu seinna að  Matthías hefði fjárfest í elleftu íbúðinni.

Í september á síðasta ári setti Matthías glæsihýsi sitt við Hlíðarveg í Kópavogi, sem metið var á 94,5 milljónir, á sölu og flutti í Kórahverfið.

Kaldalind 8
Höllin í Kópavogi.

Heimili:

Kaldalind 8

328,6 fm

Fasteignamat: 117.900.000 kr.

 

Matthías Imsland:

Tekjublað DV 2018: 1.853.690 kr.

Ekki missa af nýjasta DV.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Þorsteinn Pálsson leiðréttir Össur: Nei, Össur, það er ekki Viðreisn heldur Samfylkingin sem hallar sér til hægri

Þorsteinn Pálsson leiðréttir Össur: Nei, Össur, það er ekki Viðreisn heldur Samfylkingin sem hallar sér til hægri
Eyjan
Í gær

Segir fund með Grindvíkingum sláandi – „Það er orðið svo þreytt að segja að hugur manns sé hjá þeim“

Segir fund með Grindvíkingum sláandi – „Það er orðið svo þreytt að segja að hugur manns sé hjá þeim“