Hjúskaparstaða og börn?
Ég er giftur og á tvö börn.
Fyrsta atvinnan?
Ég bar út flokksblað Framsóknarflokksins, Tímann, á Akureyri. KEA stóð enn styrkum fótum og áskrifendurnir margir og dyggir. Þetta átti nú heldur betur eftir að breytast.
Hefur þú ort ljóð?
Já, hver hefur ekki gert það? Ég hnoðaði saman fjölmörgum textum fyrir plötur Skriðjökla, en alvarlegum tilraunum til ljóðagerðar hélt ég blessunarlega fyrir sjálfan mig.
Ertu A- eða B-maður?
Ætli ég ég sé ekki staddur þarna mitt á milli. Ég er líklega A-maður að upplagi en það eru hins vegar ekki allir fjölskyldumeðlimir og þá lagar maður sig auðvitað að því.
Hvernig leið þér í jómfrúrræðunni?
Ég hef líklega verið mátulega stressaður.
Hvaða útvarpsstöð hlustar þú mest á?
Ég vakna við morgunútvarp Rásar eitt. Annars þvælist ég á milli spjallþátta sem eru í boði. Ég hlusta svo á Spotify þegar ég hef þörf fyrir músík og er minn eiginn útvarpsstjóri..
Fyrsti stjórnmálaflokkurinn sem þú kaust?
Alþýðubandalagið, í sveitarstjórnarkosningum á Akureyri, 31. maí 1986.
Ári seinna kaus ég svo sama flokk í mínum fyrstu alþingiskosningum. Oddviti flokksins í mínu kjördæmi var Steingrímur J. Sigfússon.
Hver myndi leika þig í kvikmynd?
Ja, Felix Bergsson lék mig einu sinni í áramótaskaupinu og ég var auðvitað prýðilega sáttur við það en óttast þó örlítið að Danny DeVito gæti orðið fyrir valinu.
Mannkostir þínir?
Ég hef gaman af lífinu og á auðvelt með að vinna með fólki.
En lestir?
Hvatvísi og stórt skap hefur einstaka sinnum komið mér í tímabundinn bobba.
Bítlarnir eða Stones?
Bob Dylan.
Hefur þú skotið úr byssu?
Já.
Ertu ættrækinn?
Ekki úr hófi fram, er mér sagt.
Leiðinlegasta húsverkið?
Að hengja upp úr þvottavél.
Hefur þú fallið á prófi?
Já, það kom nú fyrir í menntaskóla.
Hvaða rakspíra notar þú?
Salvador Dali, Diesel og Calvin Klein, jöfnum höndum. Fer eftir skapi og veðri.
Við hliðina á hverjum situr þú oftast í matsal Alþingis?
Það er engin regla á því, en ég sit þó oftast við sama borðið. Þar er yfirleitt krökkt af Pírötum, Samfylkingar- og Viðreisnarfólki og einstaka VG-liði slæðist þangað einnig.
Eitthvað að lokum?
Meira fjör!