Húsvíkingurinn Ævar Austfjörð hefur unað hag sínum vel í Vestmannaeyjum, en þar hefur hann búið í níu ár og starfar nú sem kokkur hjá Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Ævar hefur vakið mikla athygli fyrir matarvenjur sínar, en í lok sumars 2017 tók hann áskorun um að borða bara kjöt og drekka vatn í 90 daga. Mataræðið lagðist vel í Ævar, sem hélt því áfram eftir að áskoruninni lauk og hefur honum aldrei liðið betur að eigin sögn.
Nú eru nýjar áskoranir framundan hjá Ævari, sem er búinn að setja hús sitt í Vestmannaeyjum á sölu og ráða sig sem kokk í Flúðaskóla, en fjölskyldan flytur í lok sumars.
„Ástæða flutningsins er fyrst og fremst sú að vera nær barnabörnunum mínum tveimur og takast á við nýja faglega áskorun,“ segir Ævar hress í bragði í samtali við DV. Hann mun keyra daglega til vinnu, en fjölskyldan mun búa á Selfossi. Ævar segir að tíminn í Eyjum hafi verið góður og frábært að búa þar.
Aðspurður hvort hann hyggist líka breyta til í mataræðinu samhliða flutningnum, svarar Ævar neitandi og segir afbragðs kjötbændur um allt Suðurland og örugglega kost að hafa SS í næsta nágrenni. „Ég kaupi samt mest af mínu kjöti frá Viðbót á Húsavík og Kjarnafæði. Þar er boðið upp á gott verð og vöru, afbragðs þjónustu og fría heimsendingu.“
Ævar kom karate á koppinn í Vestmannaeyjum, stofnaði félag þar og hefur verið ötull þjálfari í sportinu. Hvað verður um félagið þegar hann flytur og hyggst hann stofna annað á Suðurlandi?
„Ég á von á að þeir sem eru hér í félaginu í Eyjum muni halda starfinu gangandi. Það er einhver starfsemi á Selfossi og í Hveragerði, en ég veit ekki hvernig staðan er á því. Ef það er eftirspurn þá er aldrei að vita hvað ég geri.“